31.10.11

Hamburg.. b-day baby

Dagurinn í dag var lovely - Lentum í Hamburg og fórum beint að versla í H&M eins og sönnum Íslendingum sæmir !!

Fórum síðan á ótrúlega sætan og góðan stað sem heitir Vespa's þar sem við fengum góðar heilsupizzur og créme brulé !!

Yndislegur dagur !!

Á morgun er það svo NIVEA skoðunarferð og skemmtilegheit... P.S. ÉG Á AFMÆLI Á MORGUN :)))

 Við skoðuðum H&M via Kastrup!!
 Á hótelherberginu
 Ommnommnomm...
Afrakstur 2ja tíma!

30.10.11

O*P*I - The Muppets line...

 Nýja naglalakkalínan frá OPI er ÆÐI (finnst mér) The Muppet collection er ótrúlega skemmtileg lína með glimmeri og geggjuðum litum !!

Línan er komin í búðir og veit ég allavega að hún fæst í Lyfju x x
 Þetta er mitt uppáhalds !! x x

Hægt er að skoða línuna nánar hér: http://www.bellasugar.com/OPI-Muppets-Nail-Polish-Collection-Pictures-18847406
 

Halloween freak me out!

Halloween og ég er Hooters gella !!

Góða skemmtun dolls !

x x

26.10.11

Colour me pretty ..

Fallegir litir eiga mitt hjarta þessa stundina í grámyglunni !!

x x 

DownTown RVK !!
New In - ASOS !!
New In - ZARA !!

25.10.11

Wishlist !!



Núna er ég í þannig stuði að mig langar í ALLT !!


((vonandi næ ég að finna eitthvað skemmtilegt í Þýskalandi ))

Hér að ofan er óskalistinn minn...

x x



<------ ((NÝTT uppáhalds ))

24.10.11

Ich liebe dich

Ég á í sannkölluðu love-hate sambandið við H&M en stundum elska ég þessa blessuðu búð en stundum þoli ég hana ekki !!

Ég er frekar spennt fyrir nýja Winter collection-inu og verð ég að segja að ég hata ekkert að Þýskaland bíður eftir mér, en ég fer til Hamburg 31.október næstkomandi...

Þetta eru þær flíkur sem kveikja í mér :

x x

Fíla þetta outfitt í tætlur !!

Finnst þessi peysa voðalega kósí

Væri til í allt á þessari mynd !

Það er eitthvað við þetta vesti sem mér finnst kúl !

22.10.11

L.O.V.E. - Skagafjörður





Plön helgarinnar breyttust aðeins og ákvað ég að skella mér með tengdafjölskyldunni norður í Skagafjörð.

Helgin mun einkennast af góðum mat, tónlist, spilakvöldum, heitum potti og krúttsprengju ársins: Jónas Baltasar Halldórsson.

Eigði góða helgi elskurnar !!

Hér að ofan eru nokkrar myndir úr sveitinni...


x x 

21.10.11

Whiter shade of pale...

Í dag verður góður dagur. Ég er búin að ákveða það!

-Lunch með bestu stelpunum mínum á Vegamótum klukkan 12.00
-Heimsókn í Blómaval
-Heimsókn í Gufunesið..
-Fyrsta vísindaferðin, NOVA it is!!

Árin líða og samt er þetta alltaf versti dagur ársins.. Það er erfitt að sakna...


20.10.11

Et Voilá !!

Komin með tvær útfærslur - voða misjafnar... Er að spá í að klippa út nokkur lítil og bæta við !!

Hvað finnst þér??
 Útfærsla 1

Útfærsla 2

x x 

Eitt notalegt - Kósí í myrkrinu með tölfræðibókina við hendina!


Butterflies in the stomach..VOL.2

Jæja þá er þetta allt að gerast...
Fiðrildaveggur in the makin' !!!!



Fiðrilda"módelið"

 Skæri og svartur karton (krúsjal)
 "módelið" og úrklippan

Fiðrildaveggur in the makin'

x x

Versace + H&M

Nú fer að styttast í að vörurnar úr samstarfi Versace og H&M birtist í H&M verslunum útum allan heim en það á allt að gerast þann 17.nóvember næstkomandi.

Nú þegar eru myndir af línunni farnar að birtast á netinu og verð ég að segja að ég er ALLS EKKI hrifin af öllum flíkunum, finnst margar hverjar meira að segja ansi furðulegar og sumar jafnvel ljótar.

Þetta eru þó uppáhaldsflíkurnar mínar úr línunni og er ég sérstaklega hrifin af rauða kjólnum og svarta pilsinu:









Þessi neðsti finnst mér ekki flottur einn og sér - En módelið og lúkkið í heild sinni finnst mér virka !!

x x

Línuna má sjá í heild sinni hér: http://www.vogue.co.uk/news/2011/06/21/versace-collaborates-with-handm/gallery/1

18.10.11

Butterflies in the stomach..

Mig hefur langað í fiðrildavegg alveg frá því að ég sá fiðrildavegginn hennar Serenu í Gossip Girl.

Ég hafði heyrt um ýmsar útfærslur þar sem svona fiðrildi voru föndruð og fest uppá vegg og voru þá meðal annars keypt fiðrildi í Blómaval og þau spreyjuð svört. Mér fannst þetta bæði svolítið tímafrekt ásamt því að friðrildin voru ansi dýr.





Ég ákvað því að fara einfaldari leiðina og keypti mér svartan karton í Office 1. Svo ætla ég að klippa þau út eftir fiðrildamynstri og hengja þau uppá vegg með límbyssu.

Ég held að þetta muni koma ótrúlega vel út og er mega spennt!

Afraksturinn verður svo sýndur á morgun!

x x

17.10.11

Baby it's cold outside ..

Hi Dolls!

Dagurinn í dag einkennist af kulda, dekri og kósíheitum...

Ég ákvað að nýta tækifærið þar sem að maður getur nú oft verið ansi HRÁR eftir aðgerðir að gera eitthvað smá fyrir sjálfa mig.

Heimatilbúið: - Lit og plokk
              - Maski
              - Laga neglur (hendur og fætur)
              - Og loks smá Dove brúnka
(til að fríska upp á annars ansi hvítt hörundið)




Þetta er það sem mér finnst best að nota til að dekra við sjálfa mig..

*Hvað gerið þið þegar þið viljið fríska upp á útlitið?

x x

16.10.11

Beyoncé Luvin'

Hún Beyoncé okkar er svo mikið með'ettah! Hún er klárlega FLOTTUST








x x

Wishing...and hoping

Hi Dolls!

Þetta held ég að allar stelpur kannist við (örugglega strákar líka) að þrá eitthvað fallegt í fataskápinn fyrir haustið og veturinn.

Þetta er á óskalistanum mínum í augnablikinu...

-Falleg sheer skyrta
-Svartur leðurjakki sem er töff og öðruvísi í sniðinu
-Mjúk Knit peysa í kuldanum
-Leðurbuxur
-Rauður "klassískur" leðurjakki
-Fallegur dökkur varalitur til að vera með í myrkrinu



Hvað er á ykkar óskalista?

x x

No.1

Hi Dolls!

Þá er komið að þessu. Ég hef verið svolítið spennt fyrir því að blogga alveg frá því að ég byrjaði að skrifa fyrir Skvísuráð á Pressunni og nú ákvað ég að láta verða af því!

Ég ætla ekki að hafa þetta fyrsta blogg langt, en hér ætla ég aðallega að tala um tísku, förðun og hönnun ásamt því að vera með einhver persónuleg blogg.

Hér má sjá pistlana mína á Pressunni:

http://www.pressan.is/pressupennar/Steinunn_Edda_Steingrimsdottir

x x