Mig hefur langað í fiðrildavegg alveg frá því að ég sá fiðrildavegginn hennar Serenu í Gossip Girl.
Ég hafði heyrt um ýmsar útfærslur þar sem svona fiðrildi voru föndruð og fest uppá vegg og voru þá meðal annars keypt fiðrildi í Blómaval og þau spreyjuð svört. Mér fannst þetta bæði svolítið tímafrekt ásamt því að friðrildin voru ansi dýr.
Ég ákvað því að fara einfaldari leiðina og keypti mér svartan karton í Office 1. Svo ætla ég að klippa þau út eftir fiðrildamynstri og hengja þau uppá vegg með límbyssu.
Ég held að þetta muni koma ótrúlega vel út og er mega spennt!
Afraksturinn verður svo sýndur á morgun!
x x
Eins og þú hafir verið að lesa hugan minn, er einmitt að gera svona á vegginn hjá mér! Þetta er mega tímafrekt! Langar bara að kaupa fiðrildin ... Veistu hvar var hægt að fá þau ?
ReplyDeleteSko, ég heyrði Sösterne Grene og Blómaval. Þar voru þau samt marglit og það þurfti að spreyja þau eða mála :) Gæti vel verið að þetta fáist samt í föndurbúðum eða IKEA
ReplyDeleteGOOD LUCK! x x