Smá NOSTALGÍA hérna meginn! Var að skoða fyrsta pistilinn sem ég skrifaði :)) Hvernig fílar þú refaskottin?
Refaskottin snúa aftur : Búðu til þitt eigið fyrir minna en 2000 kr
Loðfeldir af öllu tagi eru það heitasta í dag, hvort sem það er á skóm, kápum ,vestum, húfum eða töskum. Þetta má sjá á öllum heitustu tískubloggunum í dag
Inná síðunni wheredidyougetthat má sjá ófáar færslur þar sem skinn koma við sögu sem og á bleedforfashion og hinni þekktu fashiontoast.
Eins flestir vita fer tískan alltaf í hringi og getur því verið sniðugt að geyma föt og hluti. Hver veit nema það komi í tísku eftir nokkur ár og þá getur verið gott að geta skotist niður í geymslu og grafið það upp aftur. Þannig geturðu sparað þér háar fjárhæðir fyrir utan það að gömul klassík er oft mikið flottari en fjöldaframleidd tískubóla.
Skinn og feldir hafa í raun aldrei dottið úr tísku, þó að yngri kynslóðin hafi farið á mis við hlýjar vetrarflíkur í sínum næfurþunnu gerviefnum. Pelsar eru ekki lengur merki um ríkidæmi og þjóðfélagsstöðu heldur hafa þeir öðlast nýjan sess í rokkaðari og pönkaralegri stíl. Í stað þess að pelsar séu yfirhöfn yfir síðkjóla eru þeir notaðir við hversdagsleg tækifæri í bland við galla – og leðurefni.
![]() |
Refaskott 1 : Mikið úrval er af ýmsum tegundum refaskotta ásamt krókum, þetta er keypt í Hvítlist á undir 1700 krónum og krókurinn á 90 krónur. |
![]() |
Refaskott 2: Á skottunum er flipi sem er þræddur í gegnum hringinn á króknum. |
![]() |
Refaskott 3: Endarnir eru klemmdir saman þannig að hliðarnar séu jafnar. |
![]() |
Refaskott 4: Skinnið saumað hringinn, bæði hægt að nota saumavél og sauma í höndunum sé nálin nógu beitt. |
![]() |
Refaskott 5: Krókurinn er hengdur með áföstu skottinu og krækt í töskur, belti eða annað sem heillar. |
![]() |
Refaskott 6: Hér er gott dæmi um töff refaskott fest á tösku. |
![]() |
Refaskott 7: Kim Kardashian er meðvituð um að feldar séu í tísku og skartar hér forláta vesti. |
![]() |
Refaskott 8: Sienna Miller hefur alltaf verið þekkt fyrir flottan stíl og hitter að sjálfsögðu í mark með þessari flottu kápu. |
Eftir því sem að eftirspurnin eykst hækkar verðið með og eru skinnin engin undantekning þar , en hér er góð leið til að fá þetta “lúkk” á einfaldan og ódýran máta.
x x
x x
love it <3
ReplyDelete