9.11.11

Happiness & Beauty

Í gær hélt ég yndislegan hitting með yndislegum stelpum.

Við borðuðum og hlógum langt fram eftir kvöldi og það var bara notalegt hjá okkur!

Ég fékk fullt af flottum pökkum og er ótrúlega ánægð með þá alla, enn og aftur TAKK FYRIR MIG!! x x





Stelpurnar sætustu !!


En að öðru þá á pabbi minn frábæri afmæli í dag og óska ég honum innilega til hamingju með daginn og óska ég honum einnig til hamingju með að vera bara flottastur í geiminum!

Mamma mín er þó ekki síðri en hún og unnustinn hennar voru að setja inn lag á Youtube sem að mér finnst bara fallegt. Ótrúlega ljúft lag sem mér finnst rosalega kósí að hlutsta á í myrkrinu.

Lagið er hér að neðan, en mamma mín Linda Sif Þorláksdóttir syngur og unnustinn hennar, Jóhann Herolds sá um tónlistina.






x x Njótið í kuldanum og myrkrinu !!

No comments:

Post a Comment