Hver elskar ekki förðunarráð? - Hér eru nokkur!

Þó svo að þau séu til mörg förðunarráðin þá finnst mér þau öll nytsamleg þar sem allir verða að finna það sem virkar best fyrir sína húð. Hér eru nokkur sem mér þykja skemmtileg og áhugaverð.
Ráð varðandi grunnförðun:
Eins og hefur verið tuggið ofan í okkur konurnar svo oft, er númer 1,2 og 3 að þekkja sína húðtegund og litarhaft. Það kemur því engum á óvart þegar ég segi að lykilatriðið bak við fallega grunnförðun er það að velja fallegan farða sem blandast vel inn í þitt náttúrulega litarhaft og hefur þetta náttúrulega yfirbragð.
** Beindu athygli þinni sérstaklega að þessum stöðum sem þú gleymir oft. Línan alveg upp við hársvörðinn, eyrnasneplarnir, kjálkalínan, munnvikin og augnsvæðið spila stóran þátt þegar kemur að því að vera með náttúrulegt og fallegt yfirbragð.
Ráð varðandi hyljara:
Flestir atvinnu make up artistar leika sér með hyljara og skapa og fela ýmislegt sem hin almenna kona gæti ekki gert án þess að læra það. Til dæmis eru margir sem vita kannski ekki að ef grunnförðunin þín er kremuð eða í púðurformi, þá er best að nota hyljarann fyrst, en hinsvegar ef að grunnförðunin er í fljótandi formi þá er betra að nota hyljarann undir lokin til að lagfæra hin minnstu smáatriði sem fara í taugarnar á okkur.
Ráð varðandi augn- og varablýanta:
Til að fá sem fallegasta útkomu hvort sem þú ert að notast við augnblýanta eða varablýanta þá skiptir alltaf mjög miklu máli að þeir séu vel yddaðir og beinir án þess þó að brotna og molna.
** Settu blýantinn inn í frystinn í 10 mínútur, alls ekki lengur og þá færðu þá áferð á hann sem gagnast þér best. Það skal þó hafa það í huga að ydda blýantinn mjög varlega ef að þetta ráð hefur verið notað.
Ráð varðandi varaliti:
Hver vill ekki vera með safaríkar og flottar varir? Rétta trixið til að ná þeim sem fyllstum er að setja örlítið af augnskugga sem er í sama lit og varaliturinn sem þú notar rétt fyrir miðju bæði á neðri og efri vörina. Þetta skapar þetta munúðarfulla útlit sem enginn getur staðist.

No comments:
Post a Comment